Við kaupum engar auglýsingar vegna framboðsins:
Mörgum þóttu það mikil mistök þegar ákveðið var að leyfa kostnað vegna
kynninga/auglýsinga einstaklinga til stjórnlagaþings upp að 2 milljónum
króna. Vegna þess að það mismunar frambjóðendum með ólíkan fjárhag og
hagsmuni, en einnig vegna þess að það treystir í sessi vinnubrögð sem
stór hluti þjóðarinnar vill segja skilið við. Margir frambjóðendur tóku
strax afstöðu gegn auglýsingum um framboð og ég held að talsverður hluti
landsmanna hafi tekið ákvörðun um að kjósa ekki þá sem kaupa
auglýsingar, hvort heldur sem er á eigin kostnað eða þiggja til þess
styrki. Þar sem facebook er aðalmiðillinn sem velflestir frambjóðendur
nota (ókeypis síður þar), tók einhver sig til fyrir um það bil tíu dögum
og bjó til síðu á þeim miðli þar sem hægt var að sjá svart á hvítu
hverjir hefðu keypt auglýsingar og mælst var til þess að notendur
tilkynntu nöfn ef þeir sæu keyptar auglýsingar frá viðkomandi. Þarna var
ekki gerður greinarmunur á því hvort um var að ræða ódýrar auglýsingar á
facebook eða aðrar auglýsingar, heldur litið svo á að um prinsipp væri
að ræða. Margir frambjóðendur brugðust ókvæða við og nú upphófust miklar
samræður um muninn á ódýru og dýrum auglýsingum, ekki prinsippið
sjálft. Eftir um það bil sólarhring var búið að loka síðunni og engar
skýringar fékk ég á því, aðrar en að annaðhvort stofnandi síðunnar, sá
sem bjó hana til, eða facebook sjálft hefði lokað henni. Líklegast er að
andstæðingar hennar hafi tilkynnt hana, það virkar eins og eins
konar kæra sem gengur út á að innihald síðunnar sé óviðeigandi. Ef
svoleiðis er gert í einhverjum mæli lokar kerfið síðunni. Þar sem ég vilhelst geta séð á einum stað hverjir kaupa örugglega EKKI
auglýsingar, ákvað ég að stofna þessa síðu hér og hvet ykkur,
samframbjóðendur mína, til að skrifa undir ef þið fallið í
þann hóp.
Ef þið þekkið einhvern
frambjóðanda sem veit ekki af þessu en myndi vilja skrá sig hér skuluð
þið endilega láta vita af slóðinni. Ef svo ólíklega vill til að þessari
síðu verði lokað fyrir kosningarnar verður það ekki að mínu frumkvæði,
heldur hefur þá einhver annar getað látið loka henni.
Þórunn Hjartardóttir, 6956.
Comment